Prófíll

  • Nafn: Kristrún Ómarsdóttir
  • Staður: Eskifjörður
  • Hjúskaparstaða: Á lausu

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Gleraugnaglámur...eða wott ever..:)

20. mars 2007 klukkan 20:09
Jahá....ohh það var svooo gott að sofa yfir sig í gær...var ógeðslega þreytt...en var að vinna tólf til tólf á föst og lau og auðvitað þurfti maður að skella sér á kósý á laugardaginn þar sem það var síðasti dagurinn sem það var opið...það var rosa stuð...var eiginlega bara með Lenu og Stanley...og eins og þið flest öll vitið...þá tala ég mikið þegar ég er komin í glas...þannig að Stanley fannst ekkert rosa gaman þar sem hann talar ekki ensku og bara pínu í ísl...:S en ég og lena skemmtum okkru ágætlega...dönsuðum pínu og voða gaman...var samt ekkert svo þunn á sunnudaginn...og var bara frekar hress sagði Hania...:)
Vaknaði kl hálfeitt í gær þegar mamma hringdi...og ég bara omg...geggjað gott að sofa..:) en já...svo bara var ég að láta mér leiðast...og fór svo með bílinn í skoðun og sagði kallinn að ég þyrfti að láta laga...spyrnudgjklaæsdjflæaj...hvað sem það er...en hann skrifaði það á blað fyrir mig svo ég myndi muna það :) hehe...:S en já svo í dag fór ég í skólann rosa stuð...sótti svo mömmu í vinnuna og við skelltum okkur á reyðarfjörð að skoða gleraugu...og ég keypti mér ógeðslega töff...fæ þau eftir svona hálfan mánuð...en shit hvað gleraugu eru ógeðslega dýr...(ykkur er velkomið að styrkja mig...til að fá reikningsnr...hringiði eða talið við mig á msn...) nei djók...en samt shit...en já svo er ég bara heima og já...hef ekkert að segja...:S

Helgin

13. mars 2007 klukkan 13:55
OHhhh KRÆST....hata þetta drasl...var búin að skrifa helling...en ok byrja bara uppá nýtt...ekki eins og ég hafi mikið að gera...hmhmhm jáa...:)
Mamma og Pabbi ákváðu að skella sér í sumarbústað yfir helgina þannig ég ákvað að skella mér bara á ball og söngvakeppni á Egs...Fór bara snemma uppí egs og fór á pizzuna með Helga og svo á söngvakeppni...Hún var fín..margir sem sungu vel....var samt hætt að finna fyrir rassinum á mér því ég var búin að sitja svo lengi...:S en jámm...sv oeftir það fórum við smá rúnt og sóttum Sjöfn og svo til Bigga og fengum okkur nokkra bjóra fyrir ballið...svo var okkur skutlað í fellabæ og stoppað hjá hetjunni að henda eikkerju fólki út...og Helga og Sjöfn fannst rosalega góð hugmynd að labba bara á ballið....EKKI MÉR...það var skítkallt...en ok....svo vorum við eikkað fyrir utan að spjalla við fólk og svo fórum við bara inn...eða ég hélt það allavega en Helgi var ennþá úti þannig við týndum honum...vorum eikkað hálftíma á balli og fórum svo út..seldum miðana okkar og fórum á hetjuna....það var rosa stuð..fórum svo í partý og fórum ekki að sofa fyrren eikkað 7 eða átta...vöknuðum svo eldhressar í hádeginu fórum í ríkið og svo í shell að borða með Nínu...Nína minnti mig á að skila myndinni sinni sem ég er búin að vera með í eikkað...eitt og hálft ár eð eikkað....en jámm...svo fór ég heim...eldaði kjúkling og sofnaði yfir einhverri mynd...fór svo í sturtu og aftur í egs...og þegar ég var nýkomin þangað hringir Nína í mig og ég bara omg...auðvitað gleymdi ég myndinni...en ok...svo fór ég bara að hanga í Olís...(ÞAÐ ER VÍST TÖFF) og Helgi var að vinna....Brjálað að gera...NOT...en jámm svo fór ég til Sjafnar og við skelltum okkur aftur á Hetjuna...og þar var bara aftur rosa stuð og ég hitti Þór sem vildi endilega hitta mig afþví hann er að fara flytja...en þar sem hann er skyldur mér...þá voru náttlega allar stelpurnar vitlausar í hann og hann hafði bara engann tíma til að spjalla við mig...en já...ég tók svo líka einhverjar myndir og setti á síðuna...en já hef ekkert að segja...ok bæ...
P.S.  145 dagar í að ég má fara í ríkið..
P.P.S eða hvernig sem það er skrifað...Ég er að fara til Litháen 29. Apríl :)

hmm..

07. febrúar 2007 klukkan 11:40
Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

ÉGHEFEKKERTAÐSEGJABARABLOGGATILAÐBLOGGAJÁAA..

06. febrúar 2007 klukkan 20:25
Hmhmhm hef ekkert að segja nema að Tærgesen er búið að opna aftur og ég er semsagt byrjuð að vinna...S.S. allir að fara á tærgesen...og svo ÉG ER AÐ FARA TIL LITHÁEN 29. APRÍL :D Hlakkar geðveikt til...er að fara með systir minni og fólki sem erað vinna í sunnuhlíð..:D
Annars er ég bara eikkað búin að vera í skólanum rosa dugleg...er að fara í stærðfræðipróf á mán..:S og vona að mér gangi vel þar sem ég hata stærðfræði og nenni engan veginn að taka þennann áfanga aftur...en annars gegnur bara vel í skólanum...og ég er ýkt ánægð að ég sé byrjuð að vinna aftur :D en ekki jafn ánægð að ég sé ekki búin að fá útborgað :S en það hlýtur að koma á næstu dögum...annars hef ég ekkert að segja....

:P

06. febrúar 2007 klukkan 20:12
K : You're wild and crazy
R : You are Great in bed.
I : You Are Great in bed.
S: You are fucking crazy.
T : You're loyal to those you love.
R : You are Great in bed.
U : You really like to chill.
N: You like to drink.


A : You like to drink.
B : Best Kisser ever.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E: You are easy to fall in love with.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You have very good personality and good looks.
I : You Are Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Everyone loves you.
M : You like people.
N: You like to drink.
O: Awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : You are Great in bed.
S: You are fucking crazy.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgemental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y: You never go unnoticed
Z : Always ready

Lalala...nýtt ár....

09. janúar 2007 klukkan 02:08
Jáá...vá hvað tíminn er fljótur að líða....finnst eins og ég hafi verið að fagna árinu 2006 í fyrradag....en nei..alltíeinu bara komið 2007 og ég ennþá í tímum með busum..:S ekki alveg nógu gott...en já...skólinn er semsagt byrjaður..byrjaði í dag..er með ágætis stundatöflu..nema ég er alltaf í fyrsta tíma...þannig ég fæ aldrei að sofa út..:(
Svo erum við pabbi bara ein heima...alltaf partý..:P hehe neee...það sem liðið er af þessu nýja ári...þá hef ég bara eitt tímanum í að vinna og horfa á sjónvarpið...:S omg.. og já svo kíkti ég á kosy á lau..rosa stuð...en sá frekar mikið eftir því daginn eftir þar sem ég var að vinna tólf til tólf..:)
en já...reynað skrifa stærri og skemmtilegri færslu næst..
.:S

Próf!!...:S

04. desember 2006 klukkan 20:56
Jámm það eru víst komin próf...en fyrsta prófið mitt er á miðvikudaginn...fer bara í fjögur próf.. en er samt ekki búin fyrren 14..:/ ég ætti þá að hafa nægan tíma til að lesa..:)
Annars er ég bara alltaf að vinna og eikkað að skólast.. skar mig samt á maganum í vinnunni um daginn..ekki gott...henti glerbroti í ruslið og fór svo út með ruslið um kvöldið og það var eins og ég hafði farið í keisaraskurð...en þetta var samt bara skráma..:)  og já svo er ég virkilega farin að halda að ég þurfi gleraugu þar sem ég labbaði á hurðina hjá mömmu og pabba um daginn og fékk alveg æðislega kúlu á ennið..:)   svo fór ég líka í bíó um daginn með Kolbrúnu á Monster house þetta er nú miklu ógeðlsegri mynd en ég hélt...
Svo var ég líka í vinnunni um daginn og var að fara upp að tala við Lenku þá sé ég eikkað svart skjótast á hinum endanum á ganginum og ég bara omg er ég farin að sjá ofsjónir en jæja ég labba áfram og þá skýst mús framhjá mér ég sem er ekki hrædd við mýs brá ógeðlsega mikið að ég hélt ég myndi fá hjartaáfall og bara omg fór niður og sagði haniu frá þessu og hún hljóp upp með kúst en fann hana ekki þannig það voru bara settar gildrur í staðinn...vorum samt geggt  að spá í að drepa hana og setja hana fyrir utan hurðina hjá Lenku...en hættum við..:S en já ég hef ekkert að segja þannig að,,,,

Rvk

04. nóvember 2006 klukkan 02:43
já..ég er heima hjá systir minni að drekka..og þar sem allir eru í wow eða eikkað álíka þá ákvað ég barað blogga...

Lúðaleg afrek mín síðan síðast:
*Setti heimsfræga mynd af Fraud á heimildaritgerð um Karl Marx..Smára til mikillar skemmtunar.
*Fæddist...samt alveg 19 ár síðan en ok...
*Eyddi 17000kr í að koma til rvk í einn og hálfan sólahring or sum..
*Er farin að syngja mikið og falskt í bílnum mínum þar sem útvarpið er bilað...
*Gleymi öllu sem ég er að gera í vinnunni...ætla t.d. að ná í sömu pizzuna 2..
*Ég er ég...
*og já...ég er það mikill auli að ég man ekki meira...
ohh  og núna var eikker gaur að spurja hvort ég væri í rvk á msn...HALLÓ ég heiti strunabeip í RVK.....döööö nee ég er á eskifirði...fokking fibl..
neinei...var samt ekki með nein leiðindi..
en já..hmm...annars hef ég bara verið að vinna og vinna og vinna er í tvem vinnum eiginlega 3 en fæ bara einingar fyrir 3 vinnunna...og svo náttla átt margar góðar kvöldstundir með mömmu og pabba fyrir framan sjónvarpið með popp og kók *Kemuráóvartégveit* horfandi á Hemma Gunn...:)  og já ég er búnað panta mér flug til rvk um áramótin...jeijjj :P Dagný sagði að Gummi væri svo spenntur að fá mig í heimsókn að hann væri ekkert búnað geta sofið....Gummi sagði að það væri vegna martraða..:S hmmm...jaaa..fínt...

Löng helgi...again :P

20. október 2006 klukkan 05:14
Hehe já...þar sem ég er svo dugleg og Smári þarf að fara á eikkern fund...þá þarf ég bara ekkert að mæta í skólann á morgun..og er í fríi í vinnunni þannig þetta verður bara löng helgi hjá mér :P tíhí...en jámms...setti inn mynd af stutta hárinu mínu...tók svona 1000 myndir og fann eina sem ég gat sætt mig við..hehe...hmm ekki sjálfsmyndunarsjúk...*roðn*..
Ohh og já ég HATA snjó og allt við veturinn!!! ég fór bara í mínu sakleysi yfir á Nesk um daginn á mínum sætu sumardekkjum og var þá ekki bara kominn snjór og litli rauði pólóinn tók nokkur dansspor :) en ég fór á verkstæðið hjá honum Ásbirni eftir skóla og lét kippa því í lag...eða semsagt setja nagladekk undir bílinn..:)
og já ég var btw edrú um helgina...if nobody noticed!!! tíhí *Stolt* hmhm...hóst*ÉGEREKKIALKAHÓLISTI*hóst..:)
Já svo var ég í prófi í dag...og gekk bara svona ágætlega...svo í svona miðjuprófi fór brunakerfið í gang...og allir bara voða rólegir...hmm...hux í hálftíma...á ég að labba...skokka...rölta...valhoppa...hmm....daddara svo segir Doddi...Snúið blöðunum við og farið út..og við bara omg...efþaðereinhverntímantímitilaðsvindlaþávarþaðþarna...en samviskusama ég gerði það auðvitað ekki...:)
já svo er ég bara eikkað búin að verað vinna og skólast og eikkað...og já ég bakaði um daginn með Kolbrúnu ýkt góðar smákökur...ef ykkur vantar einhvern í jólabaxturinn tökum við 5000 fyrir hverja sort..:)
En já þangað til næst......fjklasdjflæajsfklæj

Löng helgi..

08. október 2006 klukkan 23:22

Það var löng helgi í skólanum hjá mér....mætti bara í einn tíma á fimmtudaginn og svo kominn í frí...mjög fínt bara....á föstudaginn fór ég í klippingu og klipti mig stutt...geggjað töff...en var í alveg 3 og hálfan tíma eð eikkað...fór svo útað hjóla í mígandi rigningu og skítakulda með henni Kolbrúnu...hjóluðum í alveg tæpa 2 tíma...þá fór ég skjálfandi af kulda og dauðuppgefinn inní kaupfélag að spjalla við Iðunni...svo hjólaði ég heim...og það var sko ekki gaman þar sem þetta eru bara endalausar fokking brekkur...en jámms...svo kíktum við Iðunn bara á tærgesen og fengum okkur pizzu...og kíktum svo aðeins til óskars og svo á barinn...var samt bara stutt...svo á laugardeginum kíkti ég aðeins á rfj og ætlaði að ná í bjór sem átti að kaupa fyrir mig en því var gleymt...og svo fór ég bara heim og gerði mig reddí fyrir Papaball...kíktum aðeins til óskars fyrir ballið...og ég dansaði helling á ballinu við fullt af fullu fólki og ég full á mínum háu hælum....pínu illt í tánnum núna...en þetta var æðislegt ball..:) fór svo bara heim eftir ball og vaknaði hress í morgun...og er samt mest bara ekki búnað gera neitt í allan dag...en já...það var ekki fleira í bili...hendi kanski inn mynd af fallega hárinu mínu á næstunni...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Um mig :)

Nafn: Kristrún Ómarsdóttir
Fæðingardagur: 5. ágúst 1987
Staðsetning: Eskifjörður
Ég elska:
*Fjölskylduna
*Vinina
*Kók
*popp
*Að ferðast
*Prófa eitthvað nýtt
*Versla
*Gott veður
*Að eiga pening?
*Að skemmta mér með vinum mínum
*Tónlist
Ég hata:
*Vont veður
*Leiðinlegt fólk
*Peningaleysi
*Að hafa ekkert að gera
*Lélega tónlist

Ammli :)